Einar Fan Club
08.05.2007 23:03:36 / sibbull

Jæja þá..

Góðan og blessaðan daginn.

Ekki lítur út fyrir að fólk hafi misst alla trú á þessum aðdáandaklúbbi samkvæmt skoðanakönnunninni, en mér finnst fólk ekkert allt of mikið vera að sýna þessa trú o.O Hvernig væri nú að fólk byði sig fram í að vera co-vefstjóri og svona, kannski einhver í bekkjum Grunnskólans í Stykkishólmi sem gæti mögulega verið svona "inside scoop gaur" fyrir okkur hérna sem eru útskrifuð og erum að missa af öllu?

LAUSAR STÖÐUR!!

Komasvo, bjóða sig fram! Og jafnvel einhvern til að auglýsa síðuna, væri alveg glimmerandi fínt.

Sibba.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 22:35:12 / sibbull

Úrslit skoðanakönnunarinnar? [sp]

Finnst þér að Einar ætti að vera módel fyrir Gucci?

Tvímælalaust - 87%
Nei ég held ekki - 2%
Ég held ég sitji hjá - 11%

94 tóku þátt.

Það er greinilega enginn að reyna að vera neitt virkur í þessum blessaða aðdáendaklúbbi. Er þetta kannski ekki nógu kúl lengur? Iss. Þið eruð bara eymingjar! Komasvo. Einhverjir með uppástungur fyrir nýja skoðanakönnun?

Sibba.

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 19:31:00 / sibbull

Nýr meðlimur

Bjóðum Egil velkominn í hóp meðlima aðdáendaklúbbsins. 42 hafa tekið þátt í skoðanakönnunninni. Við skorum á fólk að auglýsa þennan blessaða klúbb betur. En við erum allavega orðin 31! Úé.

Sibba.

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 09:18:34 / sibbull

Úé!

Meðlimir aðdáendaklúbbsins eru nú orðnir 30. Úé!

Sibba.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 23:41:36 / sibbull

Nýjar tilvitnanir.

Já ég var nú bara að koma inn af rölti eftir að ég kíkti inn á Skarphéðinn, og bætti inn tveimur tilvitnunum sem eru nú staðsettar neðst á tilvitnanablaðsíðunni. Gaman að beygja það orð. KOMA SVO! Joina þetta hérna. Ekkert að sitja útí horni og sjúga kaffibrúsalok.

Sibba.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 12:26:52 / sibbull

Nýr meðlimur!

Jæja einhver skrifaði undir nafninu Gústi í gestabókina og bað um að fá að vera á meðlimalistanum, ég býst við að þetta sé hann Ágúst Ingi, ekki rétt? En já þá eru meðlimir orðnir 29 talsins og við bíðum spennt eftir fleiri meðlimum.

Sibba.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 11:58:54 / sibbull

Ný skoðanakönnun!

82 atkvæði voru greidd í síðustu skoðanakönnun og svona eru úrslitin:

Hefur Einsi kennt þét?

Já - 78%
Nei - 22%

En akkurat núna á þessu augnabliki er Óli Steinar að vinna að nýrri skoðanakönnun. Sjáum hvað kemur út úr því.

Sibba.

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 12:50:07 / oli

Sæl

Jæja hann hann jón viðar okkar er svo sannarlega að standa sig í þessum einsarsbransa ;) núna hefur hann fært okkur eina góða setningu sem fer beint í tilvitjanir ;) mæli með að þið kíkið :)

síja kv óli


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 14:45:23 / sibbull

Nýr fjelagi!

Jæja, hann Jón Viðar hefur bæst við í hóp okkar notandanna. Báðum við hann að hegða sér skikkanlega og líta til beggja hliða áður en hann færi yfir götuna. Hann kvaðst fara varlega. Bjóðum Jón velkominn í hópinn =)

Sibbull.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 17:21:36 / sibbull

1xnýr banner & 1xtillaga

Jæja já þá erum við barasta komin með enn einn bannerinn. Háþróaður er hann ekki en banner er hann samt. Ekki er mikið að ske í meðlimamálum en við skorum á meðlimi að auglýsa þetta samnemendum sínum sem gætu haft gaman af þessu. Meina, tuttuguogátta? Við eigum að geta gert betur en þetta!

Ég er að spá í að skrá alltaf einn nýjan notanda á hverju ári, sem er nemandi hjá Einari, svo sá aðili geti einnig bloggað og komið með fréttir og tilvitnanir og svona, afþví við "gömlu nemendurnir" erum náttúrulega ekki lengur í okkar ástkæra Grunnskóla Stykkishólms, og þá er enginn til að fylgjast með. Þannig að þið sem yngri eruð [helst í svona 8.-10. bekk] gerið okkur þann æðislega greiða að bjóða ykkur fram í þetta einfalda en skemmtilega starf!

Sibbull.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 23:33:05 / sibbull

Gleðilegt nýtt ár.

Jæja aðdáendaklúbburinn varð einsárs og ekki einu sinni stofnendurnir tóku eftir því. Ég bara var að fatta það á meðan ég klóraði mér í hausnum áðan. Einn meðlimur hefur bæst við núna eftir áramót og þá vonar maður bara að fleiri fari að taka við sér. En þangað til! Veriði sæl.

Sibbull.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.12.2005 23:56:21 / sibbull

Úé.

Þá eru komnar hérna niðurstöður úr skoðanakönnunninni og tími til kominn að gera eitt stykki nýja svoleiðis. Og hér eru úrslitin úr þeirri gömlu:

Telur þú þig tryggan Einar fan?

Að sjálfsögðu!
84%
Onei.
16%

Fjöldi atkvæða: 80
Sibbull.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 16:48:31 / sibbull

Bíddu bíddu.. BÍDDU!

Heyrðu hérna bíddu já bíddu hérna ha!?! Já sko smá svona shout out til allra aðdáenda -Skráið ykkur! - Það er alveg pláss fyrir fleiri meðlimi. Þið bara gerið simple request um að fá að vera memm í gestabókina eða skoðanir eða hvað sem ykkur dettur í hug. Ég kveð að sinni.

Sibbull.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2005 19:30:40 / oli

Ný lína!!

það er komin ný lína í tilvitnanir ;) endilega kíkið!

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2005 00:38:15 / sibbull

1 Banner & 1 Hemmi

Þá er nýr banner kominn og nýr admin - Hemmz0r - vor bekkjarbróðir og Skarphéðinsliðmaðskall. Bannerinn er að sjálfsögðu ræktaður í MS Paint - Pro forriti sem allir elska - og slagorð klúbbsins. Jæja ég kveð að sinni. Við hittumst heil.

Sibbull.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2